Hollráð um heilsuna
Nýlegar erlendar rannsóknir á líðan og högum unglinga
Í Hollráðunum að þessu sinni eru niðurstöður nýlegra erlendra rannsókna á unglingum tíundaðar. Flestar þessar rannsóknaniðurstöður eru að finna í Journal of Adolescent Health og eru einfaldaðar hér.
Vinir og umhverfið
- Jákvæð reynsla unglinga af framhaldsskólanum snemma á skólaferlinum ásamt þeim góðu samböndum sem þeir mynda við aðra í skólaumhverfinu hafa uppbyggileg áhrif á almenna líðan þeirra í námi síðar meir, draga úr líkum á áfengis- og vímuefnaneyslu og auka líkurnar á því að þeir klári námið. Góð tengsl við skólann og jákvæð vinasambönd hafa mest að segja í þessu samhengi.
- Til þess að auka áhuga unglinga á íþróttum þurfa að vera til staðar þægilegar og aðgengilegar aðstæður til íþróttaiðkunar, en einnig skiptir íþróttaáhugi vina og skólafélaga máli.
- Börn og unglingar eru líkleg til að ofmeta hversu margir í þjóðfélaginu reykja. Þar sem slíkt ofmat getur haft áhrif á hvort þau byrji sjálf að reykja er mikilvægt að upplýsa ungt fólk um staðreyndina. Um 1 af hverjum 5 Íslendingum reykir nú að staðaldri.
- Þeir unglingar sem byrja að reykja fá langoftast fyrstu sígaretturnar hjá vinum eða kunningjum.
Sjónvarp og tölvur
- Það er komin fram enn önnur ástæða til að draga úr hversu mikið unglingar horfa einir á sjónvarp. Fjölþjóðleg rannsókn sýnir að tengsl eru á milli þess að horfa mikið á sjónvarp (meira en tvo tíma á dag) og vera gerandinn í eineltistilfellum.
- Börn sem fá ekki að horfa á bannaðar myndir heima hjá sér eru síður líkleg til að byrja að reykja.
- Af þeim börnum og unglingum sem spila ofbeldisfulla tölvuleiki eru strákar í meirihlutanum. Þeir spila jafnframt meira en aðrir, eru líkegri til spila á móti ókunnugum á vefnum, eiga gjarnan eigin tölvu í svefnherberginu sínu og segjast frekar nota tölvuleiki til að hafa stjórn á reiði sinni.
Geðheilsa
- Þunglyndi snemma á unglingsárum er líklegt til að hafa neikvæðar afleiðingar fyrir líkamlegt heilsufar á fullorðinsárum og vinnuafköst. Ef foreldrar verða varir við einkenni þunglyndis hjá barni sínu er brýnt að leita fljótlega aðstoðar hjá fagaðila. Áhrif af þunglyndi versna með tímanum ef ekkert er gert.
- Áfengisneysla unglinga er áhættuþáttur hvað sjálfsvígstilraunir snertir, en sérstaklega ef börn byrja að drekka mjög snemma. Þarna er ein ástæðan til viðbótar til að tefja áfengisneyslu ungs fólks og reyna jafnframt að halda henni í skefjum ef hún byrjar.
Hlutverk foreldra
- Gott samstarf foreldra við framhaldsskólann og virkni í foreldrafélögum hefur jákvæð áhrif á námsárangur barnsins. Jafnframt sýna rannsóknir að þegar foreldrar eru virkir öll námsárin (t.d. með því að sýna náminu áhuga og eiga regluleg samskipti við kennara), þá er framhaldsskólaneminn mun líklegri til að klára einnig háskólanám síðar meir.
- Þegar unglingar afla sér upplýsinga um vandamál sem ekki eru líkamlegs eðlis (t.d. geðræn vandamál eða upplýsingar um skaðsemi áfengis og tóbaks) eru þeir líklegri til að leita til vina og foreldra en til fagaðila. Góð ástæða þar fyrir foreldra að kynna sér málin og hafa svörin við hugsanlegum spurningum á reiðum höndum.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Lýðheilsustöðvar (www.lydheilsustod.is).
Héðinn Svarfdal Björnsson
Verkefnisstjóri fræðslumála hjá Lýðheilsustöð
