Tannvernd aldraðra
Hreinar og heilbrigðar tennur skipta miklu máli fyrir vellíðan fólks. Aldraðir Íslendingar eru nú betur tenntir en áður fyrr. Vandamál tengd tönnum eru því oftar en áður til staðar hjá öldruðum og er tannvernd því afar nauðsynleg, en tannvernd snýst fyrst og fremst um góða munnhirðu, hollar neysluvenjur, notkun flúors og reglulegt eftirlit tannlæknis.
Góð munnhirða er jafn nauðsynleg öldruðum sem ungum en samhliða öldrun getur færnin til að sinna eigin munnhirðu minnkað. Laus eða föst tanngervi t.d. partar, krónur, brýr og tannplantar kalla á vandasamari þrif og þeir sem þarfnast umönnunar verða að geta treyst því að heilbrigðisstarfsfólk kunni réttu handtökin við munnhirðu og búi yfir nauðsynlegri þekkingu til að gefa góð ráð varðandi munnhirðu og tannvernd.
Rótarskemmdir hafa aukist meðal aldraðra. Tannholdið hörfar og þar með er hluti tannrótar ekki lengur verndaður af slímhúð og því kjörinn griðarstaður tannsýklu. Tannskemmd myndast hratt á rótaryfirborði. Til að hægja á vexti rótarskemmda er almennt ráðlagt að auka flúornotkun. „Duraphat“, háskammta flúortannkrem, er væntanlegt í lyfjabúðir fljótlega, en það hægir mjög á vexti rótarskemmda.
Munnþurrkinn þekkja margir aldraðir en munnþurrkur getur komið fram sem fylgikvilli sjúkdóma eða sem aukaverkun við töku lyfja og einkennist af sviða í munni og erfiðleikum við tal, tyggingu og kyngingu. Við langvarandi munnþurrk er munnurinn næmari fyrir sýkingum auk þess sem tennur skemmast frekar. Ekki eru til lyf við munnþurrki en ýmis hjálparefni eru til sem bæta líðan, s.s. sykurlausar sogtöflur, sykurlaust tyggjó, munnskol og gel. Sum þessara efna innihalda flúor og sérstaklega er mælt með þeim. Mikilvægast er þó að hirða tennurnar vel, bursta með flúortannkremi minnst tvisvar sinnum á dag og hreinsa daglega milli tannanna með tannþræði. Einnig er nauðsynlegt að drekka nóg af vatni og skola munninn með vatni oft á dag.
Hollráð
- burstið tennurnar tvisvar á dag með flúortannkremi, skyrpið svo tannkreminu en skolið ekki með vatni á eftir
- ekki borða sætindi milli máltíða og rétt fyrir svefninn, takmarkið neyslu sykraðs matar og drykkjar við matmálstíma eingöngu
- mörg lyf geta orsakað og viðhaldið munnþurrki - leitið upplýsinga í lyfjabúðum
- til eru munnvatnsörvandi hjálparefni sem bæta líðan ef munnþurrkur er til staðar
- farið í reglulegt eftirlit til tannlæknis
Hólmfríður Guðmundsdóttir
Verkefnisstjóri tannheilsu
Lýðheilsustöð
