Að efla eigin heilsu : Að hætta að reykja - með aðstoð
Þrátt fyrir að þessi vitneskja liggi fyrir reyna flestir að hætta að reykja á eigin spýtur, án aðstoðar. Eflaust er engin ein rétt leið til við að hætta að reykja sem passar fyrir alla og er mjög mismunandi hvað hentar hverjum og einum í hverju tilviki fyrir sig.
Eitt er þó víst í þessum málum, að með aðstoð tvöfaldar þú að minnsta kosti líkurnar á því að þér takist að hætta að reykja.
Að hætta að reykja
Mjög auðvelt er að fá aðstoð til þess að hætta að reykja hvenær sem þú ert tilbúin(n) til þess. Flestir hafa reynt nokkrum sinnum að hætta að reykja áður en þeim tekst það endanlega og er um að gera að halda áfram að reyna þangað til takmarkinu er náð. Að hætta að reykja er ákveðið ferðalag með mismörgum stoppum á leiðinni. Segja má að ferðalagið samanstandi þó alltaf af þremur áföngum: Fyrsti áfanginn er að taka ákvörðun um að hætta að reykja og undirbúa það. Síðan er það framkvæmdin, að hætta að reykja. Að lokum er það áfangastaðurinn, sem felur í sér að halda sig við lífstílsbreytinguna, að vera reyklaus til framtíðar.
Það hefur gefist mörgum mjög vel að ákveða hvaða dag þeir ætla að hætta og undirbúa sig síðan í nokkra daga fyrir það, til dæmis með því að draga markvisst úr fjölda sígaretta sem reykt er hvern dag og skipuleggja og ákveða hvernig bregðast skuli við því þegar löngunin í sígarettu kemur yfir. Eins er gagnlegt að æfa sig í að vera reyklaus í ákveðnum aðstæðum, prófa hvað virkar og hvað virkar ekki eins vel.
Gott er að hugsa fyrir því hvort reykleysislyf myndu hjálpa í þínu tilviki og vera þá búin(n) að nálgast þau þegar að þeim merkisdegi líður að þú hættir að reykja. Komið er á markaðinn fyrsta lyfið sem hannað var í þeim tilgangi að aðstoða fólk til þess að hætta að reykja, lyfið Champix sem er án nikótíns og lofar góðu. Nikótínlausa lyfið Zyban sem hefur verið á markaðnum í nokkur ár hefur líka hjálpað mörgum. Síðan eru það hin svokölluðu nikótínlyf sem margir hafa notað með góðum árangri.
Mikilvægt er að hafa fleiri úrræði en eingöngu viljann að vopni. Rannsóknir sýna það mjög skýrt að aðstoð fagfólks í formi einstaklingsráðgjafar, reykleysisnámskeiða eða tilvísun á aðstoð til að hætta að reykja ásamt því að nota reykleysislyf gefur langbestan árangur.
Hverjir veita aðstoð?
Hér á landi er starfrækt ýmis konar þjónusta sem ætluð er til að aðstoða fólk til þess að hætta að reykja. Ber þar fyrst að nefna Reyksímann – Ráðgjöf í reykbindindi s: 800 6030. Einstaklingsmiðuð ráðgjöf í síma er veitt af hjúkrunarfræðingum sem hafa sérhæft sig í að veita þeim aðstoð sem vilja hætta að reykja. Ráðgjöfin byggist á reykingasögu og þörfum hvers einstaklings og hægt er að fá fræðsluefni sent heim og eftirfylgd er veitt í formi endurhringinga. Símaþjónustan þjónar öllu landinu og er veitt endurgjaldslaust. Hjá Reyksímanum er hægt að fá allar mögulegar upplýsingar um hvaða ráð eru fyrir hendi varðandi það hvernig best sé að bera sig að við að hætta að reykja. Þessir hjúkrunarfræðingar þekkja reynslu margra sem hafa staðið í þessum sporum og geta því miðlað bæði af eigin fagþekkingu og reynslu annarra sem hætt hafa að reykja.
Annað úrræði til að fá aðstoð við að hætta að reykja er að skrá sig á gagnvirku heimasíðuna reyklaus.is. Þar færðu allar helstu upplýsingar sem snúa að því að hætta að reykja, þú ákveður daginn sem þú ætlar að hætta og færð síðan daglega sendan tölvupóst með góðum ráðum og hvatningu til dáða. Eins er hægt að senda tölvupóst til hjúkrunarfræðinganna hjá reyksímanum og fá frekari upplýsingar eða stuðning ef þörf er á. Á reyklaus.is getur þú á sérstöku spjallsvæði talað við aðra sem eru að reyna að hætta og þú getur haldið þína eigin dagbók sem þú ræður hvort þú hefur opna fyrir öðrum eður ei. Á síðunni eru margvíslegar upplýsingar, allt frá fræðslu um skaðsemi reykinga til umfjöllunar um reykleysislyfin. Ekkert þarf að greiða fyrir þjónustu Reyksímans né reyklaus.is.
Nokkur félagssamtök, einkaaðilar, apótek og stofnanir veita líka aðstoð við að hætta að reykja, ýmist með námskeiðum eða einkaviðtölum og er því um að gera að leita fyrir sér að því úrræði og þeim stuðningi sem þér hentar. Á heimasíðu Lýðheilsustöðvar, undir tóbaksvörnum, er hægt að nálgast lista yfir þá aðila sem veita aðstoð til reykleysis. Eins á að vera hægt að leita sér aðstoðar á heilsugæslustöð viðkomandi bæjarfélags og fá þar ráðgjöf og stuðning til þess að hætta að reykja.
Að sjálfsögðu er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. Viljinn og hugarfarið eru gífurlega mikilvægir þættir í því hvort fólki tekst að hætta að reykja – en því ekki að tvöfalda líkurnar á að þér takist að ná markmiðinu sem þú hefur sett þér og þiggja aðstoð og þann stuðning sem er í boði við að hætta að reykja?
Gangi þér vel!
Frekari upplýsingar:
Bára Sigurjónsdóttir
Verkefnisstjóri tóbaksvarna,
Lýðheilsustöð
