Sími : 5 800 900
Hollráð um heilsuna

Nei, það kemur ekki neitt fyrir mig?

30.12.2007

Nú líður að áramótum og flugeldasölustaðir hafa verið opnaðir. Margir eru farnir að huga að flugeldunum og skiptir litlu á hvaða aldri þeir eru. En þessi tími er ekki hættulaus.

Mikilvægt er að gæta varúðar við flugeldaskotin á gamlárskvöld og eiga t.a.m. bæði þeir sem skjóta og þeir sem horfa á að bera hlífðargleraugu.

Um hver áramót verða slys af völdum flugelda og eru brunar þar algengastir. Flestir slasast á höndum en augnslys eru líka algeng þó svo að alvarlegum augnslysum hafi fækkað undanfarin ár, sem þakka má almennri notkun flugeldagleraugna.

Algengasta orsök slysanna er vangá og/eða vankunnátta, þ.e. ekki er farið eftir leiðbeiningum. Flestir slasast um áramótin sjálf en alltaf eru nokkrir sem slasast dagana á undan og eftir, helst ungir strákar.

Slysin eru þó ekki náttúrulögmál og hægt er að halda áramót án þeirra. Það verður reyndar ekki gert nema allir átti sig á þeim hættum sem tengjast flugeldum og mikilvægi þess að fara eftir öllum leiðbeiningum sem gefnar eru.

800-1200°C hiti

Ákveðin lög gilda um flugelda og þau eru ekki sett að ástæðulausu. Þegar við sjóðum vatn er hitinn um 100°C en þegar flugeldum er skotið upp er hitinn sem þeir gefa frá sér frá 800 til 1200°C. Leiðbeiningarnar sem fylgja flugeldunum taka mið af þessari hættu og ef ekki er farið eftir þeim aukast líkur á slysum til muna.

 

  • Börn eiga ekki að umgangast flugeldavörur nema undir eftirliti fullorðinna. Foreldrar verða að vera meðvitaðir um hættuna sem fylgir flugeldum og vita hvað börn þeirra eru að fást við á þessum tíma. Mörg börn slasast af vörum sem þau hafa ekki aldur til að meðhöndla, enda þekkja þau hætturnar ekki eins vel og fullorðnir.
  • 12 ára og yngri mega ekki kaupa flugeldavörur og takmarkað er hvað 12 til 16 ára krakkar mega kaupa. Sá hópur má kaupa vörur sem eru ekki með neinum aldurstakmörkunum á, s.s. vörur sem ætlaðar eru innanhúss og sem nota má allan ársins hring.
  • Mörg alvarlegustu slysin verða vegna fikts eins og þegar verið er að taka flugelda í sundur, búa til eigin sprengjur eða breyta eiginleikum flugeldavara á annan hátt.
  • Gott er að horfa á myndbandið Ekkert fikt með börnunum sínum. Það er að finna á slóðinni http://www.landsbjorg.is/category.aspx?catID=106
  • Flugeldavörur eru ekki leikföng og ekki má nota þær í hrekki. Oft verða slys af þessum völdum, þ.m.t. heyrnaskaðar.
  • Ekki má vera með flugeldavörur á brennu. Jafn saklaus hlutur og blys getur valdið slysi þar vegna þess hversu lítið svigrúm er.
  • Áfengi og flugeldar fara aldrei saman. Margir virða þetta ekki og ljót slys hafa orðið hjá karlmönnumá besta aldri af þessum sökum.
  • Huga þarf að dýrum þegar flugeldar eru sprengdir, sérstaklega hundum, köttum og hestum. Best er að halda þeim innandyra sé þess kostur, hafa kveikt á útvarpi hjá þeim og byrgja glugga.
  • Flugelda á að geyma á þurrum stað, þar sem börn ná ekki til og ekki er mælt með að geyma þá milli ára.
  • Lesið vel allar leiðbeiningar sem fylgja flugeldum áður en skotið er upp.
  • Flugeldagleraugu eiga allir að nota, sama hvort þeir eru að skjóta upp eða bara að horfa á.
  • Hendur þeirra sem skjóta upp eða eru með handblys eru best varðar ef notaðir eru skinn- eða ullarhanskar.
  • Þegar skotið er upp á að geyma flugeldana fjarri þeim stað sem skotið er upp á og aldrei á að hafa flugeldavörur í vasa, ekki einu sinni eldspýturnar. Tvö brunaslys urðu um síðustu áramót út frá rokeldspýtnastokki í vasa.
  • Skjótið upp á opnu svæði í um 20 metra fjarlægð frá húsum, bílum og einstaklingum og látið þá sem fylgjast með standa vindmegin við skotstað.
  • Aldrei má kveikja í flugeldum á meðan haldið er á þeim, aðeins á sérmerktum handblysum.
  • Rakettur verða að hafa trausta undirstöðu þegar þeim er skotið upp, sem og standblys og skotkökur. Athugið að þau þurfa mikið rými.
  • Aldrei má halla sér yfir vöru sem verið er að bera eld að, heldur skal tendra á kveiknum með útréttri hendi og víkja strax frá.
  • Ef flugeldur springur ekki skal hella vatni yfir hann, en ekki reyna að kveikja í honum aftur.
  • Brunasár á að kæla strax með 15-20°C vatni.

 

Sigrún A. Þorsteinsdóttir,
sviðstjóri slysavarnasviðs
Slysavarnafélaginu Landsbjörg

 

 



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica