Öryggi skólabarna í umferðinni
Mjög mikilvægt er að allir í umferðinni gæti fyllstu varúðar í nágrenni skólanna – sérstaklega þegar börnin eru að koma í skólann eða yfirgefa hann. Best er að börnin gangi í skólann – þau litlu í fylgd með fullorðnum – allir fá þá góða daglega hreyfingu auk þess sem þannig er dregið verulega úr umferðaþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólanum.
En þurfi að aka börnunum í skólann þá eru hér nokkur hollráð um öryggi þeirra:
Þegar barni er ekið til og frá skóla:
- Notum ætíð viðeigandi öryggis- og verndarbúnað fyrir barnið í bílnum
- Gefum okkur góðan tíma – tímaskortur er streituvaldur og getur aukið líkur á óhöppum eða slysum
- Virðum ætíð hraðamörkin
- Gætum sérstakrar varúðar þegar ekið er að eða inn á skólalóðina
- Veljum öruggan stað til að hleypa barninu út úr bílnum, t.d. þar sem ekki þarf að fara yfir götu
- Veljum öruggan stað fyrir barnið að bíða á þar til það er sótt að skóladegi loknum.
Samkvæmt almennum ráðleggingum ættu börn að hreyfa sig rösklega í a.m.k. 60 mínútur daglega. Þar er bent á miklvægi þess að börn gangi sem oftast í skólann. Að sjálfsögðu þarf að fylgja þeim yngstu þar til þau eru orðin fær um að komast örugg í skólann. Mjög mikilvægt er að foreldrar kanni gönguleiðina í skólann og finni þá leið sem öruggust er fyrir barnið.
Barninu hjálpað að ganga öruggt í skólann:
- Gefum okkur góðan tíma
- Höfum í huga þroska og reynslu barnsins
- Kennum barninu að
-
- horfa til beggja hliða og hlusta eftir bílum
- líka þurfi að horfa vel í kringum sig á meðan farið er yfir götuna
- aldrei megi ganga út á götu á milli kyrrstæðra bíla
- nota alltaf gangbrautir, þar sem þær eru, sérstaklega þar sem gangbrautarvarsla er
- þýðingu mikilvægra umferðamerkja og umferðaljósanna
- stoppa alltaf áður en gengið er yfir götu; aldrei að hlaupa út á götuna
- nota alltaf endurskinsmerki á útifatnað
,,Göngum í skólann”
Októbermánuður er alþjóðlegur „göngum í skólann“ mánuður. Þann 3. október er hápunktur átaksins og allir sem geta eru hvattir til að ganga í skólann þennan dag. Á síðasta ári tóku 40 lönd um víða veröld og milljónir barna þátt í þessu verkefni. Nú er Ísland orðið meðlimur í verkefninu, og verður það kynnt nánar innan skamms, en stefnt er að því að „göngum í skólann“ verði árlegur viðburður á Íslandi.
Með verkefninu er m.a.hvatt til aukinnar hreyfingar, börnin verða færari í að ganga á öruggan hátt í skólann og það dregur úr umferð.
Með ósk um gott og slysalaust haust.
Rósa Þorsteinsdóttir
verkefnisstjóri slysavarna, Lýðheilsustöð
