Sími : 5 800 900
Hollráð um heilsuna

Er unglingurinn að byrja í framhaldsskóla?

29.8.2007

29.8.2007
Fyrsta skref nýnema inn í ókunnugan heim framhaldsskólans markar byrjun spennandi og krefjandi tíma. Um er að ræða nokkur af erfiðustu en jafnframt eftirminnilegustu árum ævinnar.

Kvíðinn sem þið finnið hugsanlega fyrir við tilhugsunina um að unglingurinn ykkar sé að byrja í framhaldsskóla er ekkert í samanburði við það sem hann er sjálfsagt að upplifa sjálfur. Skyndilega fer hann úr hópi þeirra elstu úr grunnskóla yfir í hlutverk óreynds nýnema sem þekkir lítið til nýja umhverfisins. Hér eru nokkur ráð um hvernig hægt er að gera gott úr flóknu tímabili í lífi unglingsins:

Náið sáttum um sanngjarnar viðmiðunarreglur

Unglingar eru tilbúnir að taka við sífellt meiri ábyrgð, en samt er ekki hægt að ætlast til þess að þeir geti tekið allar ákvarðanir um hvað sé í lagi og hvað ekki. Setjist saman og ræðið opinskátt um hvaða væntingar þið hafið til komandi skólaárs hvað varðar ábyrgðir heima fyrir, útivistartíma, námið og annað sem ykkur finnst mikilvægt. Verið tilbúin að hlusta á skoðanir unglingsins á þessu og taka tillit til þeirra. Best er ræða málin með yfirvegun, spyrja spurninga og forðast boðhátt. Þegar þið hafið á þennan hátt náð sáttum um sanngjörn mörk og ábyrgðir verðið þið rólegri og á sama tíma hafið þið sýnt unglingnum að hann getur haft áhrif á umhverfi sitt með uppbyggilegum samtölum og samvinnu.

Verið til staðar og bjóðið stuðning

Hafið í huga að unglingurinn mun kannski vera stressaður og pirraður fyrstu vikurnar í framhaldsskólanum. Það er margt sem getur haft skapbresti og mislyndi í för með sér enda er unglingurinn er að upplifa margþættar breytingar í lífinu á skömmum tíma. Svipað og þegar þið finnið fyrir streitu út af vinnu má vera að unglingurinn finni fyrir höfuðverkjum, magaverkjum og síþreytu vegna álagsins í nýja umhverfinu. Unglingurinn þarf tíma og rúm til að átta sig á hlutunum. Verið því þolinmóð og sýnið biðlund.

Unglingar þurfa að vita að foreldrar eða forráðamenn styðja ákvarðanir þeirra. Það má vera að fyrstu vikurnar eða mánuðir verða þeim erfiðir félagslega og þess vegna er ekki ólíklegt að það verði freistandi að prufa eitthvað nýtt til að finna viðeigandi eða „réttu“ sjálfsímyndina. Svo framarlega sem þetta nýja er hvorki þeim né öðrum skaðlegt er um að gera að vera skilningsrík.

Bjóðið upp á heilsusamlegar aðstæður

Rétt mataræði, regluleg hreyfing og nægilegur svefn eru öll lykilatriði á unglingsárunum. Sextán ára unglingar þurfa a.m.k. 8½ klukkutíma svefn en helst 9 tíma. Líkaminn (og ekki síst heilinn) er að breytast mikið og því eru svefn og gott matarræði mikilvægt. Sjáið til þess að unglingurinn hafi aðgang að hollum morgunmat áður en hann heldur af stað að morgni og ræðið um holla matarvalkosti í hádeginu. Sælgæti og gos út í sjoppu ættu t.d. ekki að vera helstu orkulindirnar. Ef unglingurinn stunda ekki íþróttir utan skóla gæti verið gott að bjóða upp samverustundir um helgar sem hafa í för með sér hreyfingu.

Slakið á taumnum, en ekki sleppa

Unglingar á framhaldsskólaaldri þurfa í auknum mæli að taka mikilvægar ákvarðanir og axla aukna ábyrgð. En það er ekki þar með sagt að þeir séu orðnir fullorðnir og hafi þar með þroska til að takast á við allan þann þrýsting og álag sem þessu fylgir. Fullvissið unglinginn um að þið séuð til staðar þegar hann þarf á að halda en jafnframt að honum sé gefið svigrúm þegar hann vill og þarf að taka á málunum upp á eigin spýtur.

Það getur reynt á að vera foreldri unglings og sérstaklega ef framhaldsskólinn reynist yfirþyrmandi reynsla fyrir hann. Reynið að njóta góðu tímana saman og verið til staðar þegar syrtir í álinn. Þolinmæði og skilningur geta skilað miklu á komandi mánuðum.

Átta atriði til umhugsunar

  1. Gott er að sýna skólanum áhuga og að kynnast aðstæðum. Umsjónarkennarar eru mikilvægir tengiliðir við skólann og foreldrafundir bjóða upp á tækifæri til að kynnast öðrum foreldrum.
  2. Ræðið saman um þær breytingar sem fylgja nýjum skóla og bendið á þá aðstoð sem er til staðar í skólanum, t.d. hjá námsráðgjafa, kennurum, forvarnafulltrúa, hjúkrunarfræðingum, o.fl.
  3. Hefur unglingurinn öruggar og þægilegar leiðir til að komast til og frá skóla?
  4. Mikilvægt er að gefa unglingum rými til að þróa sitt félagslíf.
  5. Hvetjið unglinginn til að taka þátt í íþróttum og uppbyggilegum tómstundum.
  6. Hefur unglingurinn góða og hljóðláta aðstöðu til heimanáms? Markmiðið er að unglingurinn temji sér góða námsvana upp á eigin spýtur, en stundum þarf að hagræða aðeins til að það náist.
  7. Það þarf ekki að vera slæmt að unglingur vinni fáeinar klukkustundir á viku með skólanum, en það hefur sýnt sig að of mikil vinna getur haft neikvæð áhrif á námsárangurinn.
  8. Gleymið ekki að hugsa einnig um ykkur sjálf. Foreldrar eru helstu fyrirmyndir barna sinna.



Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica