Er sólvarnaráburður besta sólarvörnin?
Það er sérstaklega mikilvægt að börn séu vel varin fyrir sólinni. Húð barna er mun þynnri en húð fullorðinna og geta þeirra til að mynda vörn gegn geislum sólarinnar er því ekki eins góð. Hér á eftir eru nokkrar ábendingar um hvernig við getum varið okkur og börnin okkar fyrir hættulegum geislum sólarinnar á suðrænum slóðum en ekki má gleyma að sökum þess hversu tært andrúmsloftið er á Íslandi getur útfjólublá geislun frá sólinni valdið sólbruna á skömmum tíma.
-
Sólarvörn Húðin er mun þynnri hjá börnum en hjá fullorðnu fólki og geta þeirra til að mynda vörn gegn geislum sólarinnar er því ekki eins góð.
-
Sumar og sól, og það er gaman að vera úti og leika. Margar fjölskyldur fara á suðlægar slóðir í sumarfrí til að njóta sólarinnar.
Húðin gleymir aldrei
Ung börn ættu aldrei að vera í sól óvarin. Sérstaklega ekki fyrsta aldursárið, þegar húðin er alveg ný. Mikilvægt er að verja hvítvoðunga vandlega, sólhattur og þunn sumarföt henta þeim vel. Staðsetjið barnavagninn í skugganum eða notið sólhlíf.
Ef farið er út í sólina er besta vörnin föt og hattur, en sólaráburð má bera á þau svæði sem eru ber. Berið þá á nægjanlegt magn og notið áburð sem verndar gegn bæði A- og B-geislum með sólvarnarstuðulinn 15 eða hærri. Berið á hálftíma áður en farið er í sólina og endurtakið á tveggja klukkutíma fresti. Munið að jafnvel sólaráburður sem er vatnsþolinn máist af þegar maður þurrkar sér með handklæði og þegar maður svitnar eða er lengi í vatni.
Forðist sólina um miðjan daginn.
Frá klukkan 11 til 15 eru geislar sólarinnar sterkastir og um 60% af heildargeislun dagsins á sér stað á þessu tímabili. Takið fjölskyldur sem búa á suðrænum slóðum til fyrirmyndar og forðist sólina, t.d. með því að borða inni, fá ykkur smá lúr eða leyfa börnunum að leika sér innandyra eða í skugganum. Þegar það er mögulegt er það að forðast sólina yfir miðjan daginn klárlega besta og einfaldasta sólarvörnin. Meiri geislun nær til jarðar um hádegi á skýjuðum degi en á heiðskírum degi fjórum tímum síðar. Enginn, og þá sérstaklega ekki börn, ætti að liggja í sólbaði þegar sólin er hátt á lofti.
Geislun sólarinnar endurkastast af hvítum sandi og vatni sem veldur því að hún verður sterkari og hættan á að sólbrenna eykst. Það er því mikilvægt að vernda börnin þegar þau eru að leika sér á ströndinni eða í sundi. Stuttermabolur er góð sólarvörn og til eru sérstök föt sem eru hönnuð til að veita vörn gegn geislun.
Hægt er að kaupa sólgleraugu fyrir börn og fullorðna sem veita 100% vörn gegn bæði A- og B-geislum. Þau draga stórlega úr áreiti geislunar sólarinnar á augun en hún getur valdið skýi á auga (cataract) og öðrum augnsjúkdómum.
Sýnum börnum og unglingum okkar gott fordæmi og verum klár í sólinni.
Sveinbjörn Kristjánsson verkefnisstjóri á Lýðheilsustöð
