Heimur batnandi fer?
Á öllum tímapunktum virðast unglingar nefnilega hafa verið til trafala, óhlýðnir, óskylduræknir og almennt “ekki eins og þegar ég var ung(ur)”. Eru þetta ekki kannski bara sígild viðbrögð þeirra sem eldri eru? Þar er jú við því að búast að hver ný kynslóð þurfi að berjast fyrir sjálfstæði, móta sérkenni og afla sér viðurkenningar. Slíkt getur styggt eldri kynslóðirnar. En eru unglingar nú til dags í alvörunni svo slæmir?
Raunveruleikinn er sá að unglingar standa sig ákaflega vel, einmitt í þeim málum sem oft er talað um að séu að fara í bál og brand. Árið 1998 svöruðu 42% af 10. bekkingum því að þeir hefðu orðið drukknir á undanförnum 30 dögum. Nýjustu rannsóknir sýna hinsvegar að árið 2007 hafa 21% unglinga á sama aldri orðið ölvaðir á sama tímabili. Unglingar eru farnir að átta sig að sígarettur eru ekkert spennandi leið til að gera uppreisn, heldur nokkuð hallærisleg arfleið fyrri tíma. Tölurnar endurspegla þetta, en aðeins 11% af 10. bekkingum á Íslandi reykja daglega í dag miðað við 23% árið 1998. Svipaða sögu er að segja af hassneyslu 10. bekkinga, en árið 1998 höfðu 17% prófað hass en aðeins 9% í dag. Þetta eru breytingar sem hafa átt sér stað á aðeins níu árum.
Þessi jákvæða þróun má þó ekki verða til þess að við sinnum ekki skyldum okkar sem foreldrar og forráðamenn. Rannsóknir sýna að ákveðnar venjur sem foreldrar temja sér hafi jákvæð áhrif á líðan og lífsstíl unglinga. Hér eru nokkrar uppástungur:
- Takið jákvæðan og virkan þátt í lífi unglingsins.
- Sýnið viðfangsefnum unglingsins áhuga.
- Hlustið á uppbyggilegan hátt.
- Eflið sjálfsímynd unglings. Hrósið fyrir viðleitni jafnt sem árangur.
- Hjálpið unglingnum að takast á við hópþrýsting.
- Þið eruð mikilvægustu fyrirmyndirnar. Verið því góðar fyrirmyndir.
- Sendið skýr skilaboð.
- Setjið ótvíræðar en sanngjarnar reglur. Verið tilbúin að slaka á sumum reglum ef unglingurinn hefur unnið traust ykkar.
- Hvetjið unglinginn til tómstundariðkunar.
- Verið í góðu sambandi við foreldra bekkjarfélaga og vina.
- Ræðið af hreinskilni við barnið um áfengi og önnur vímuefni.
- Leitið aðstoðar ef þið teljið unglinginn eiga í vanda.
Undir lokin er ágætt að hafa í huga aldargömul orð rithöfundarins Marks Twains: “Þegar ég var fjórtán ára var pabbi minn svo vitlaus að ég þoldi varla að vera í viðurvist hans. En þegar ég var orðinn tuttugu og eins árs uppgötvaði ég mér til furðu hversu margt hann hafði lært á sjö árum.” Ætli Mark Twain hafi ekki verið að gefa í skyn að ráðlegt sé að sýna unglingum umburðarlyndi og skilning? Sýnum biðlund og styðjum við bakið á ungu fólki. Framtíð þess er björt.
Höfundur: Héðinn Svarfdal Björnsson, verkefnisstjóri fræðslumála hjá Lýðheilsustöð.
Greinin birtist í Morgunblaðinu 25. apríl 2007
