Sími : 5 800 900
Hollráð um heilsuna

Prófalokum fagnað - saman

9.5.2006

profalokVorboðinn ljúfi; lok samræmdu prófa er kominn. Um þessar mundir eru 10. bekkingar um allt land að standa upp frá stífum próflestri og vonandi vel unnum próförkum. Fyrir nokkrum árum fór allt á hvolf þann dag sem prófunum lauk. Öryggisvörðum var fjölgað í Kringlunni og foreldrar krosslögðu fingur í von um að sitt barn kæmist heilt í rúmið að kvöldi dags. En sem betur fer er þetta liðin tíð.

Flestir skólar skipuleggja nú einhvers konar fögnuð fyrir sína nemendur í samstarfi við foreldraprofalok3. Almenn ánægja virðist vera með það fyrirkomulag ekki síst meðal nemenda. Þó slíkt hafi náð að festa sig í sessi þá er ástæða til að minna foreldra og forráðmenn á nokkur atriði sem skipta verulegu máli.

Nemendur eru búnir að standa í ströngu við próflestur. Það er þraut að taka samræmd próf og álag fyrir foreldra og aðra í fjölskyldunni. Því er full ástæða til að fjölskyldan geri sér dagamun saman þegar prófin eru að baki.

Útivistarreglur leyfa börnum 13-16 ára að vera úti til miðnættis frá 1. maí. Foreldrar geta að sjálfsögðu sett sínar reglur innan þeirra marka.

Með því að útvega börnum áfengi er verið að samþykkja að þau drekki. Rannsóknir sína að þau börn sem fá nesti að heiman halda áfram að drekka þó nestið klárist. Þau drekka sem sagt meira. Langflestir foreldrar segjast ósammála þeim rökum að betra sé að útvega unglingum vín heldur en að þau reddi sér sjálf landa eða öðru sulli. Þegar búið er að samþykkja drykkjuna er erfitt að snúa við.

Leyfum ekki eftirlitslaus partý

Eftirlitslaus partý bjóða hættunni heim. Þó foreldrar treysti sínum börnum til að halda samkvæmi fyrir vini sína geta komið upp ástæður sem þau ráða ekki við. Alltaf ætti að vera einhver fullorðinn til staðar og foreldrar sem ætla að leyfa sínu barni að fara í partý ættu hiklaust að athuga hvort einhver fullorðinn verði á staðnum. Þeir foreldrar sem leyfa unglingum að drekka heima hjá sér eru í raun að taka fram fyrir hendurnar á öðrum foreldrum án þess að þeir fái nokkuð að gert.profalok2

Samræmdu prófunum lýkur nú á miðvikudegi og líklega fara flestir beint eftir síðasta próf upp í rútu á vit ævintýra. En það gera ekki allir. Eitthvað hefur borið á því að þeir sem sitja eftir heima reyna að blása í glæður gömlu tímanna og skella nokkrum í sig um miðjan dag. Ástæða er fyrir foreldra að vera vakandi yfir þessu.

Um helgin eftir að prófum lýkur hefur oft gætt eirðarleysis hjá krökkunum. Þá vilja þau hittast og gera eitthvað sjálf. Foreldrar ættu að hafa þetta í huga því upplýsingar um partý eða drykkjustaði berast fljótt með símum og msn-um.

Þó einkunnir úr prófunum séu ekki komnar, vorprófin eftir og mánuður eftir að skólanum gefa lok samræmdra prófa vissulega tilefni til að fagna. Mikilvægt er að foreldrar og unglingar grípi tækifærið og fagni saman. Langflestir unglingar nota ekki tóbak eða vímuefni og þeir þurfa stuðning og hvatningu til að halda áfram á þeirri braut.

Hildur Björg Hafstein

verkefnastjóri á Lýðheilsustöð

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica