Hættum að reykja í janúar
Hér á eftir eru nokkur ráð sem geta vonandi auðveldað einhverjum að hætta að reykja og halda reykleysið út.
Fyrsta stig: Undirbúningur
Gott er að búa sig vel undir að hætta að reykja.
Þekktu reykingavenjur þínar: Gott getur verið að halda dagbók í viku um hvenær, hvar og hvers vegna þú reykir til að koma auga á þá þætti sem auka líkur á reykingum og forðast þá. Gott er að skrifa niður tillögur að því sem hægt er að gera í stað þess að reykja.
Ástæður þess að hætta: Gott er að skrifa á blað mikilvægustu ástæður þess að hætta, kostina og hvað þú telur þig öðlast í kjölfarið. Vertu alltaf með þetta við höndina.
Brjóttu upp vanann: Þegar ákveðið hefur verið að hætta er gott að byrja á að fækka þeim stöðum þar sem má reykja - búa til reyklaus svæði. Þau geta t.d verið heimilið, bíllinn o.s.frv. Hafðu svæðin sem flest til að brjóta upp vanann og þá verður baráttan auðveldari eftir að þú hættir.
Stuðningur: Sumir kjósa að hætta upp á eigin spýtur en gott er að vita hvar er hægt að fá stuðning, ef þörf er á, áður en að dagurinn rennur upp.
- Ráðgjöf í reykbindindi í síma 800 6030 er ókeypis símaþjónusta fyrir fólk sem vill hætta að nota tóbak. Þar starfa hjúkrunarfræðingar með sérþekkingu á tóbaksmeðferð. Þeir veita persónulega ráðgjöf, byggðri á reykingasögu þess sem hringir og þörfum hvers og eins. Þeir bjóða eftirfylgni, hvatningu og stuðning. Frá 2.-13. janúar er opið lengur en vanalega, eða á milli kl. 17 og 21 alla virka daga.
- Krabbameinsfélag Reykjavíkur heldur reglulega námskeið í reykbindindi. Næsta hefst 12. janúar (nánari upplýsingar í síma 540 1900).
- Guðjón Bergmann heldur einnig reglulega námskeið í reykbindindi. Næstu hefjast 6. og 7. janúar (nánari upplýsingar á www.vertureyklaus.is).
- Heimilislæknirinn þinn, eða heilsugæslulæknir, ætti einnig að geta aðstoðað.
Annað stig: Að hætta
Að hætta er mikil ákvörðun en hún er fljót að borga sig, fjárhagslega og heilsufarslega.
Hér koma nokkur ráð til að styðjast við:
- Veldu dag til að hætta og stattu við hann.
- Hafðu listann yfir „hvers vegna þú ákvaðst að hætta“ alltaf við hendina.
- Ef þú ákveður að nota níkótínlyf hafðu þau þá við hendina þegar þú ákveður að hætta og farðu eftir leiðbeiningum.
- Drekktu mikið af vatni.
Mundu að þegar þú hættir að reykja skiptir hugarfarið öllu máli. Einbeittu þér alltaf að - og minntu þig á - jákvæðu hliðar þess að hætta og ekki hugsa um að þú sért að pína þig eða getir þetta ekki.
Þriðja stig: Að halda út
Að halda sér reyklausum er breyting á lífstíl og getur tekið á. Það er þó margt hægt að gera til auðvelda skrefin til reyklauss lífs.
- Ef þú tengir reykingar við sérstakar aðstæður, forðastu þær þá fyrst um sinn og prófaðu þig svo áfram. Gott er að vera búinn að ákveða viðbrögð við erfiðum aðstæðum.
- Taktu tíma fyrir sjálfa/-n þig á hverjum degi þar sem þú gerir eitthvað fyrir þig.
- Minntu þig reglulega á af hverju þú hættir.
- Nýttu þér stuðning annarra.
- Hugsaðu um sjálfa þig sem manneskju sem reykir ekki en ekki sem fyrrverandi reykingamann.
- Verðlaunaðu þig reglulega með peningunum sem þú sparar. Þú átt það skilið!
Gangið þér vel
Jakobína H. Árnadóttir, M.Sc. í heilsusálfræði,
verkefnisstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð
Reykingar kosta u.þ.b. kr.
( 1 pk. á dag)
Daglega 580
Á viku 4060
Á mánuði 17.400
Á ári 211.700 = t.d. safaríferð til Afríku, ...
