Hjálmar og annar öryggisbúnaður
Við hönnun á hjólreiðahjálmi er tekið tilliti til þess að börn geti notað hann á fleiri farartæki en reiðhjól. Hjólreiðahjálminn er því hægt að nota á öllum þessum farartækjum og engin ástæða til að fjárfesta í mörgum gerðum hjálma. Mjög mikilvægt er að nota einungis viðurkennda hjálma en þeir bera merkinguna CE.
En hafi barnið ekki notað hjálminn lengi þarf að byrja á því að kanna hvort hann passi ennþá. Einnig er mikilvægt að kanna ástand hjálmsins; hvort hann sé illa farinn eftir að hafa t.d.verið hent oft í gólfið eða verið skemmdur á annan hátt.
Nýr hjálmur keyptur
Við kaup á nýjum hjálmi er mikilvægt að barnið komi með í verslunina. Best er að mæla ummál höfuðsins en það er gert yfir breiðasta hluta þess. Stærðir hjálma hlaupa alltaf á 5-6 sm. Miðstærð af hjálmi er 53-58 sm. og hann passar þá fyrir barn sem er með höfuðmálið 54-56 sm.
Þegar að börnin eru á hjólabrettum og línuskautum er mikilvægt að þau noti einnig úlnliðshlífar, hnéhlífar og olnbogahlífar en þær koma í veg fyrir að bein brotni. Þessi öryggisbúnaður á einnig að vera CE merktur
Á hlaupahjólinu er einnig gott að nota olnbogahlífar og hnéhlífar og úlnliðshlífar ef hægt er að koma því við. Mikilvægt er að hlaupahjólin séu stillt í rétta hæð fyrir barnið. Stillingin er rétt þegar að barnið er með olnbogana bogna í mittis hæð. Það getur verið hættulegt ef stýrið er oft hátt, sér í lagi ef barnið fellur fram fyrir sig og fær þá stýrið í magann.
Foreldrar þurfa að fylgist með ástandi hlaupahjóla, reiðhjóla, línuskauta og hjólabretta því mörg slæm slys má rekja til þess að búnaðurinn var bilaður.
Afar mikilvægt er að foreldrar brýni fyrir börnum sínum að vera ekki að leika sér á umferðargötum.
Herdís L. Storgaard
Verkefnastjóri barnaslysavarna
Árvekni, Lýðheilsustöð
