Börn í innkaupakerrum
Í fyrravor var gerð rannsókn á heima- og frítímaslysum barna á aldrinum 0-4 ára sem komið höfðu á slysadeildina árið 2003. Niðurstöðurnar sýndu að 5% barnanna, tæplega 80 börn, höfðu slasast í verslunum. Einna alvarlegustu slysin sem verða í verslunum eru fallslys og þá flest vegna falls úr innkaupakerrum. Sum þessara slysa eru mjög alvarleg því flest börnin hljóta höfuðáverka.
Hvað geta foreldrar gert til að koma í veg fyrir þessi slys?
- Látið barnið alltaf sitja í þar til gerðu sæti.
- Athugið að barn sem er þyngra en 15 kíló á ekki að sitja í innkaupakerru.
- Börn eiga aldrei að sitja ofan í körfunni sjálfri.
- Ekki má yfirgefa smábarn eitt augnablik í körfunni.
- Veljið alltaf körfu sem er með belti fyrir barnið, ef hún er til.
- Hægt er að nota venjulegt beisli, með smá breytingu, til að festa barnið í sætinu.
- Þegar kerra er valin er mikilvægt að gæta þess að hjólin virki eðlilega.
- Sé kerrunni ekið út á bílastæðið gætið þess þá að forðast holur í malbikinu.
Atriðin sem talin eru hér upp tengjast öll slysum á börnum í innkaupakerrum og með því að fara eftir þessum ábendingum leggja foreldrar og forráðamenn sitt af mörkum til að koma í veg fyrir þessi slys.
Hlutverk verslana
Í verslunum þarf líka átak til að koma í veg fyrir þessi slys. Til dæmis mætti skilti í verslunum um þessa hættu og einnig mætti fræða starfsfólk um þetta svo það sé í stakk búið til að benda foreldrum á hætturnar. Mjög mikilvægt er að verslanir sjái til þess að belti séu í barnasætunum á innkaupakerrunum. Svo þarf að vera reglubundið eftirlit með kerrunum, nokkur alvarleg slys má rekja til þess að kerran var í ólagi, hjólin stóðu á sér eða að grindin var skökk eftir að ekið hafði verið á hana.
Nauðsynlegt er að lýsing á bílastæðum og aðkoma að versluninni sé í góðu lagi. Hálkuvörn verður að vera en dæmi eru um að foreldrar hafi dottið í hálku fyrir utan verslun og við það hefur innkaupakerran farið á hliðina og barnið kastast úr henni. Sömuleiðis geta skemmdir og holur í malbiki og fláa við inngang verslana orsakað svona slys. Klaka þarf að líka að fjarlægja, því erfitt er að keyra kerrur yfir hann sem getur orsakað slys.
Leggjumst öll á eitt til að gera innkaupaferðina ánægjulega og hættulausa börnum.
Herdís L. Storgaard,
verkefnastjóri Árvekni-barnaslysavarna,
Lýðheilsustöð
Nánar má lesa um þetta efni á heimasvæði Árvekni.
